Icardi að ganga í raðir PSG

Mauro Icardi mun ganga til liðs við PSG frá Inter …
Mauro Icardi mun ganga til liðs við PSG frá Inter Mílanó á næstu dögum samkvæmt fjölmiðlum á Ítalíu. AFP

Knattspyrnumaðurinn Mauro Icardo er að ganga til liðs við Frakklandsmeistara PSG en það er ítalski miðillinn Corriere dello Sport sem greinir frá þessu. Ítalski miðillinn greinir frá því að PSG muni tilkynna um félagsskiptin um helgina en Icardi, sem er samningsbundinn Inter Mílanó, var á láni hjá PSG á nýafstaðinni leiktíð.

Icardi kostar í kringum 60 milljónir evra en hann er 27 ára gamall framherji frá Argentínu. Hann hóf atvinnumannaferil sinn með Sampdoria þar sem hann sló í gegn í ítölsku A-deildinni. Eftir frábæra frammistöðu þar var hann keyptur til Inter Mílanó árið 2013. Icardi skoraði tólf mörk í fjórtán byrjunarliðsleikjum í frönsku 1. deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert