Ragnar klár en ekki í hópnum

Ragnar Sigurðsson
Ragnar Sigurðsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ragn­ar Sig­urðsson, landsliðsmiðvörður í knatt­spyrnu, er ekki í leikmannahóp FC Kø­ben­havn sem mætir Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni á morgun þrátt fyrir að vera búinn að hrista af sér meiðsli sem hrjáðu hann fyrir nokkrum vikum.

Leikurinn er sá fyrsti hjá liðinu í rúma tvo mánuði eða síðan hlé þurfti að gera á mótinu vegna kórónuveirufaraldursins. Félagið hefur birt 18 manna hópinn fyrir leikinn á morgun sem er á útivelli.

Félagið hefur staðfest að samningur Ragnars við félagið, sem átti að renna út 30. júní, hefur verið framlengdur til 31. júlí svo að hann verði í það minnsta í herbúðum félagsins út tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert