Mætast Sara og Sandra í úrslitaleik?

Sandra María Jessen og Sara Björk Gunnarsdóttir í leik Þórs/KA …
Sandra María Jessen og Sara Björk Gunnarsdóttir í leik Þórs/KA og Wolfsburg haustið 2018. mbl.is/Þórir Tryggvason

Þýsku meistararnir í Wolfsburg eru komnar í undanúrslit bikarkeppninnar og þurftu ekki að hafa mikið fyrir sigrinum í 8-liða úrslitum í dag. 

Wolfsburg mætti b-deildarliðinu Gutersloch á útivelli og vann 3:0 þótt íslenski landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir væri hvíld ásamt fleiri leikmönnum. 

Sandra María Jessen er einnig komin áfram í undanúrslit með Bayer Leverkusen eins og mbl.is greindi frá í gær. 

Sandra og Sara mætast ekki í undanúrslitum og gætu því mæst í bikarúrslitaleiknum en hann er ekki á dagskrá fyrr en í byrjun júlí. 

Wolfsburg mætir Bielefeld í undanúrslitum og Leverkusen leikur gegn Essen. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert