Dortmund gefst ekki upp

Emre Can skorar sigurmarkið.
Emre Can skorar sigurmarkið. AFP

Dortmund minnkaði forskot Bayern München á toppi þýsku 1. deildarinnar í fótbolta niður í sjö stig á nýjan leik með 1:0-heimasigri á Hertha Berlín í dag. 

Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði miðjumaðurinn Emre Can sigurmarkið á 57. mínútu eftir góðan undirbúning Julian Brandt. Lék Can með Liverpool og Juventus áður en hann gekk í raðir Dortmund í janúar. 

Bayern er í toppsætinu með 70 stig og Dortmund í öðru sæti með 63 stig. Þar á eftir kemur Leipzig með 59 stig. Hertha Berlin er í níunda sæti með 38 stig og á enn möguleika á sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert