Skagastrákurinn leikmaður umferðarinnar

Ísak Bergmann Jóhannesson
Ísak Bergmann Jóhannesson Ljósmynd/Nörrköping

Skagastrákurinn og knattspyrnumaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson hefur mikið verið í umræðunni undanfarna daga en hann skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark á dögunum fyrir Norrköping og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína.

Ísak er aðeins 17 ára gamall en sænskir íþróttafréttamenn hafa lofsungið framherjann unga mikið fyrir framgöngu sína með Norrköping undanfarið. Hann hef­ur skorað eitt mark og lagt upp þrjú í síðustu þrem­ur leikj­um og hefur Studio Allsvenskan, eitt stærsta fótboltahlaðvarp Svíþjóðar, valið hann sem leikmann síðustu umferðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert