Real þarf fimm stig til viðbótar

Karim Benzema skoraði eitt og lagði upp annað.
Karim Benzema skoraði eitt og lagði upp annað. AFP

Real Madrid er fimm stigum frá því að tryggja sér spænska meistaratitilinn í fótbolta eftir 2:0-sigur á Alavés á heimavelli í spænsku 1. deildinni í kvöld. 

Frakkinn Karim Benzema kom Real Madrid á bragðið á elleftu mínútu með marki úr vítaspyrnu og var staðan í leikhléi 1:0. Marco Asensio bætti við öðru marki á 50. mínútu, eftir undirbúning Benzema, og þar við sat. 

Real er með fjögurra stiga forskot á Barcelona á toppi deildarinnar þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir. Er Real með 80 stig og Barcelona 76 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert