Barcelona hélt titilbaráttunni lifandi

Leikmenn Barcelona fagna sigurmarkinu.
Leikmenn Barcelona fagna sigurmarkinu. AFP

Barcelona vann í kvöld nauman 1:0-sigur á Real Valladolid á útivelli í spænsku 1. deildinni í fótbolta. 

Sílemaðurinn Arturo Vidal skoraði sigurmarkið strax á 15. mínútu með föstu skoti úr teignum eftir stoðsendingu frá Lionel Messi. 

Barcelona er í öðru sæti með 79 stig, einu stigi frá Real Madrid sem á leik til góða gegn Granada á útivelli á mánudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert