Skoraði en fékk stóran skell

Hólmbert Aron Friðjónsson skorar í dag.
Hólmbert Aron Friðjónsson skorar í dag. Ljósmynd/Aalesund

Hólmbert Aron Friðjónsson gerði eina mark Aalesund í 1:6-tapi fyrir Bodø/Glimt í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lék hann allan leikinn með liðinu, eins og Davíð Kristján Ólafsson. Daníel Leó Grétarsson spilaði fyrstu 62 mínúturnar. Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodø/Glimt sem er með fullt hús stiga eftir sjö leiki og markatöluna 30:7. 

Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn með Vålerenga í 1:0-sigri á Mjøndalen. Dagur Dan Þórhallsson var allan tíman á bekknum hjá Mjøndalen. 

Guðmundur Andri Tryggvason er enn frá vegna meiðsla og lék því ekki með Start í 0:1-tapi fyrir Sarpsborg á útivelli. Jóhannes Harðarson er þjálfari Start. 

Axel Óskar Andrésson var allan tímann á varamannabekk Viking er liðið tapaði fyrir Odd, 1:2, á heimavelli. Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með Sandefjord í 1:3-tapi fyrir Brann á útivelli. Emil Pálsson var ekki í leikmannahópi Sandefjord. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert