Andri Guðjohnsen með slitið krossband

Andri Lucas Guðjohnsen í leik með unglingaliði Real Madrid.
Andri Lucas Guðjohnsen í leik með unglingaliði Real Madrid. Ljósmynd/Real Madrid

Knattspyrnumaðurinn ungi Andri Lucas Guðjohnsen verður frá keppni næstu mánuðina eftir að hann sleit krossband í hné á æfingu með unglingaliði Real Madrid. Fótbolti.net greindi frá. 

Andri hefur leikið vel með unglingaliði Real Madrid síðustu mánuði og var hann á lista The Guardian yfir 60 efnilegustu leikmenn heims sem eru fæddir 2002 eða síðar. 

Kom það mörgum á óvart að Andri hafi farið til Real Madríd eftir að hafa leikið með yngri liðum Barcelona og Espanyol. Eiður Smári Guðjohnsen faðir hans lék á sínum tíma með Barcelona. 

Andri Lucas hefur leikið með U16, U17, U18 og U19 ára landsliðum Íslands og skorað tólf mörk í 28 leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert