Guðlaugi hefndist fyrir að rífa kjaft við Henry

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenski knattspyrnulandsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson sagði skemmtilega sögu af Thierry Henry frá því þeir voru liðsfélagar í Bandaríkjunum í hlaðvarpi Sölva Tryggva­son­ar á dögunum.

Guðlaugur og Henry, sem átti glæstan feril með stórliðum Arsenal og Barcelona, voru saman hjá New York Red Bulls árið 2012 og var Frakkinn með ótrúlegt hugarfar að mati Guðlaugs. 

Maður hugsaði oft bara, hvernig nennirðu að vera svona? Þú ert kominn til New York, 35 ára gamall, einn besti framherji frá upphafi, búinn að vinna allt, hvernig nennirðu að vera svona?“ sagði Guðlaugur og á þá við hversu brjálaður Henry var á hverri einustu æfingu. Hann ætlaði einu sinni að rífa kjaft við Henry, en fékk að finna fyrir því að það var ekki góð ákvörðun.

„Ég svaraði honum einu sinni og hann lét mig finna fyrir því í tvær vikur á eftir. Alltaf þegar ég var með boltann reyndi hann að tækla mig upp í hné, hann tók mig af lífi. Í þessar tvær vikur var ég fórnarlambið hans. Hann tók mig fyrir, í hvaða fötum ég var, hvað ég gerði á æfingum og fleira. Hann rústaði mér.“

Þeir áttu þó eftir að sættast. Henry bauð Guðlaugi heim til sín að horfa á vináttuleik Íslands og Frakklands sem fór fram á þessum tíma. Hann býður mér heim til sín að horfa á leikinn, þannig að við vorum bara tveir saman að horfa á Ísland Frakkland [...] og mér fannst þetta náttúrulega geggjað að fá að vera þarna með honum að horfa á leikinn [...] Hann lét mig læra „the hard way“ en ég átti það líka skilið. Þessar tvær vikur voru alveg eftirminnilegar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert