Landsliðsmarkvörður framlengir

Frederik Schram verður hjá Lyngby næstu tvö árin.
Frederik Schram verður hjá Lyngby næstu tvö árin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumarkvörðurinn Frederik Schram hefur framlengt samning sinn við dansa úrvalsdeildarfélagið Lyngby um tvö ár. 

Frederik kom til Lyngby að láni frá SønderjyskE fyrst um sinn, áður en félagið samdi við hann. Frederik lék einn leik í dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. 

Hinn 25 ára gamli Frederik var í landsliðshópnum sem lék á HM í Rússlandi fyrir tveimur árum, en hann hefur alls leikið fimm A-landsleiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert