Dramatík í Íslendingaslagnum

Hjörtur Hermannsson
Hjörtur Hermannsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Brøndby hafði betur gegn FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 2:1. Voru Íslendingar í hjarta varnarinnar hjá báðum liðum. 

Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með FCK og Hjörtur Hermannsson gerði slíkt hið sama hjá Brøndby. Eru FCK og Brøndby stærstu félög Danmerkur og er rígurinn á milli liðanna gríðarlegur og sigur Hjartar og félaga því sætur. 

Kami Wilczek kom Kaupmannahöfn yfir á 12. mínútu en Jesper Lindstrom jafnaði á 31. mínútu áður en Mikae Uhre skoraði sigurmark á þriðju mínútu uppbótartímans. 

Brøndby hefur unnið báða leiki sína til þessa í deildinni en FC Kaupmannahöfn tapað báðum sínum leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert