Böðvar og félagar á sigurbraut í Póllandi

Böðvar Böðvarsson leikur með Jagiellonia.
Böðvar Böðvarsson leikur með Jagiellonia. Ljósmynd/Kamil Swirydowicz

Böðvar Böðvarsson og samherjar hans í Jagiellonia unnu í dag góðan útisigur á Piast Gliwice, 1:0, í pólsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og eru ósigraðir eftir fjórar fyrstu umferðirnar.

Böðvar lék í stöðu vinstri bakvarðar Jagiellonia allan leikinn en hann hefur spilað alla fjóra leikina. 

Jagiellonia er með 8 stig í þriðja  sæti deildarinnar en Górnik Zabrze er með 12 stig á toppnum og Raków er með 9 stig í öðru sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert