Áhorfendur leyfðir í Meistarabikar Evrópu

Bayern München varð Evrópumeistari á tómum leikvangi í Lissabon í …
Bayern München varð Evrópumeistari á tómum leikvangi í Lissabon í ágúst. AFP

Ekki verður leikið um Meistarabikar Evrópu fyrir luktum dyrum en Bayern München og Sevilla mætast í þessum árlega viðburði í Búdapest í Ungverjalandi annað kvöld.  

Ekki er heimilt að fylla leikvanginn en ákveðið var að leyfa um 30% sætanotkun og sé áhugi fyrir hendi þá gætu hátt í 20 þúsund manns komið saman á leiknum. 

Í meistarabikarnum mætast sigurvegararnir í Evrópukeppnum félagsliða, Meistaradeildinni og Evrópudeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert