Aron og Heimir fögnuðu stórsigri

Aron Einar Gunnarsson í baráttunni með Al-Arabi.
Aron Einar Gunnarsson í baráttunni með Al-Arabi. Ljósmynd/Al-Arabi

Al-Arabi vann sannfærandi 5:1-sigur á Al-Ahli Doha í katarska deildabikarnum í fótbolta í kvöld. Aron Einar Gunnarsson var fyrirliði Al-Arabi í leiknum. 

Lék Aron fyrstu 82 mínúturnar á miðjunni hjá Al-Arabi og fór af velli í stöðunni 5:1. Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al-Arabi. 

Er liðið í þriðja sæti riðilsins eftir sex leiki með tvo sigra, fjögur jafntefli og ekkert tap. Ekki hefur gengið eins vel í deildinni þar sem liðið er í ellefta sæti af tólf liðum eftir þrjá leiki með eitt jafntefli og tvö töp. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert