Kolbeinn orðinn leikfær

Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson. mbl.is/Hari

Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er orðinn leikfær á ný og kom við sögu hjá AIK í Svíþjóð í kvöld. 

Kolbeinn kom inn á sem varamaður á 70. mínútu þegar AIK tók á móti Mjällby í efstu deildinni í Svíþjóð. AIK hafði betur 1:0 með marki frá Nabil Bahoui sem ekki kom fyrr en í uppbótartíma. 

Kolbeinn hafði ekki leikið í nokkrar vikur en hann meiddist í upphitun fyrir leik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni. 

Ísland mætir Rúmeníu í umspili fyrir EM 2021 á Laugardalsvelli 8. október og spurning hvort Kolbeinn verði kominn á ágætt ról þegar að því kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert