Stórsigur hjá Bologna

Sinisa Mihajlovic stýrir liði Bologna.
Sinisa Mihajlovic stýrir liði Bologna. AFP

Íslendingaliðið Bologna vann stórsigur í kvöld þegar liðið fékk Parma í heimsókn í 2. umferð efstu deildar, Seríu A. 

Bologna vann 4:1 og er þá komið með þrjú stig í deildinni en liðið heimsótti AC Mílanó í fyrstu umferðinni og tapaði 2:0. 

Landsliðsmaðurinn ungi, Andri Fannar Baldursson, var í leikmannahópi Bologna en kom ekki inn á. 

Roberto Soriano skoraði fyrstu tvö mörkin í fyrri hálfleik. Andreas Olsen og Rodrigo Palacio skoruðu fyrir Bologna í síðari hálfleik en Hermani fyrir Parma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert