Gæti náð leiknum við Rúmeníu

Jóhann Berg Guðmundsson var borinn af velli en meiðslin voru …
Jóhann Berg Guðmundsson var borinn af velli en meiðslin voru ekki eins alvarleg og óttast var. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsmaður í knattspyrnu er byrjaður að æfa á ný með enska úrvalsdeildarliðinu Burnley eftir meiðslin sem hann varð fyrir í leik gegn Sheffield United í enska deildabikarnum fyrr í mánuðinum. 

Burnley mætir Manchester City í deildabikarnum annað kvöld og svo Newcastle um helgina. Er óvíst með þátttöku Jóhanns í leikjunum en hann gæti verið í leikmannahópnum gegn Newcastle. 

Ísland fær Rúmeníu í heimsókn í umspili um laust sæti á EM 2021 þann 8. október næstkomandi. Gæti Jóhann náð landsleiknum mikilvæga, en sigurliðið mætir annað hvort Ungverjalandi eða Búlgaríu á útivelli í hreinum úrslitaleik um sæti á lokamóti EM. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert