Ronaldo með veiruna

Cristiano Ronaldo er með kórónuveiruna.
Cristiano Ronaldo er með kórónuveiruna. AFP

Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo greindist með kórónuveiruna er hann fór í skimun hjá portúgalska landsliðinu og verður því í einangrun næstu daga. 

Ronaldo spilaði með portúgalska liðinu gegn því franska í Þjóðadeildinni síðasta sunnudag, en hann verður ekki með gegn Svíþjóð í sömu keppni á morgun. 

Verður hann væntanlega ekki með Juventus gegn Crotone í ítölsku A-deildinni um helgina og þá gæti hann líka misst af leik liðsins við Dynamo Kíev í Meistaradeildinni í næstu viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert