Fjölmörg smit hjá félagi Alberts

Albert Guðmundsson leikur með AZ Alkmaar.
Albert Guðmundsson leikur með AZ Alkmaar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjölmörg kórónuveirusmit hafa greinst hjá hollenska knattspyrnufélaginu AZ Alkmaar en Albert Guðmundsson leikur með liðinu. Tancredi Palmeri blaðamaður hjá BeIN sports greinir frá. 

Félagið tilkynnti um níu smit í síðustu viku og nú virðist veiran hafa breitt enn frekar úr sér innan veggja þess. 

Liðið á að mæta Napólí á útivelli í Evrópudeildinni á fimmtudaginn kemur en nú er óljóst hvort sá leikur fari fram samkvæmt áætlun. 

Ekki hefur verið gefið út hvort leikmenn séu á meðal þeirra sem hafa smitast eða einungis aðrir starfsmenn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert