Ertu alvöru blaðamaður?

Jürgen Klopp var nánast kjaftstopp á blaðamannafundi í morgun.
Jürgen Klopp var nánast kjaftstopp á blaðamannafundi í morgun. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, var ekki skemmt á blaðamannafundi liðsins fyrir leik Ajax og Liverpool í Meistaradeild Evrópu í Amsterdam sem fram fer í kvöld.

Klopp sat fyrir svörum á fundinum ásamt Georginio Wijnaldum, miðjumanni liðsins, en Liverpool og Ajax leika í D-riðli Meistaradeildarinnar ásamt Midtjylland og Atalanta.

Liverpool verður án þeirra Virgil van Dijk og Thiago í leiknum á eftir en þeir meiddust báðir eftir ljótar tæklingar í leik Everton og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Klopp var spurður á blaðamannafundinum hvort liðið ætti möguleika í leiknum án þessara tveggja leikmanna.

„Nei!“ sagði Klopp til að byrja með og hló kaldhæðnislegum hlátri.

„Guð minn góður. Við munum samt sem áður reyna að vinna,“ bætti Klopp við.

„Ertu alvöru blaðamaður?“ sagði Klopp svo að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert