Lewandowski getur slegið met Ronaldos

Robert Lewandowski getur skráð sig í sögubækurnar.
Robert Lewandowski getur skráð sig í sögubækurnar. AFP

Pólski markahrókurinn Robert Lewandowski skráir sig í sögubækurnar ef hann kemur boltanum í netið gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. 

Lewandwoski hefur skorað í níu leikjum í riðlakeppninni í röð, en Cristiano Ronaldo gerði slíkt hið sama á árunum 2012 til 2014. Enginn hefur áður náð að skora í tíu leikjum í riðlakeppninni í röð. 

Bayern vann alla ellefu leiki sína í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð og fagnaði að lokum sigri í keppninni eftir úrslitaleik við PSG, 1:0. Skoraði Lewandowski fimmtán mörk á leið Bayern að Evrópumeistaratitlinum. 

Atlético Madríd hefur vegnað illa á útivöllum í keppninni og aðeins unnið tvo af síðustu tíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert