Skagamaðurinn lék fyrsta leikinn

Stefán Teitur Þórðarson lék sinn fyrsta leik með Silkeborg í …
Stefán Teitur Þórðarson lék sinn fyrsta leik með Silkeborg í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viborg vann í dag 2:1-útisigur á Silkeborg í Íslendingaslag í dönsku B-deildinni í fótbolta. Komu Íslendingar við sögu í báðum liðum. 

Patrik Sigurður Gunnarsson stóð allan tímann á milli stanganna hjá Viborg, en hann missti af síðasta leik þar sem hann þurfti að fara í sóttkví. 

Stefán Teitur Þórðarson lék sinn fyrsta leik með Silkeborg, en hann kom til félagsins frá ÍA á dögunum. Gat Stefán ekki leikið síðasta leik af sömu ástæðu og Patrik, eftir að smit kórónuveirusmit greindist hjá leikmanni U21 árs landsliði Íslands. 

Viborg er í toppsæti deildarinnar með 20 stig og Silkeborg í fjórða sæti með 15 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert