Opnaði markareikninginn í Noregi (myndskeið)

Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark í Noregi í …
Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark í Noregi í dag. Ljósmynd/Skagafréttir

Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark í norsku B-deildinni í knattspyrnu þegar lið hans Lilleström fékk Sandnes Ulf í heimsókn í dag.

Tryggvi skoraði á 25. mínútu og kom Lilleström 2:1-yfir en leiknum lauk með 4:2-sigri Lilleström.

Tryggvi gekk til liðs við norska félagið frá ÍA á dögunum en hann var í byrjunarliði Lilleström og lék fyrstu 87. mínútur leiksins áður en honum var skipt af velli.

Þá kom Björn Bergmann Sigurðarson inn á sem varamaður hjá Lilleström á 64. mínútu en Arnór Smárason var ekki í leikmannahóp Lilleström.

Lilleström er með 42 stig í öðru sæti norsku B-deildarinnar, 4 stigum minna en topplið Tromsö, en Lilleström á leik til góða á Tromsö.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert