Tíunda markið í Svíþjóð

Aron Jóhannsson í leik með Hammarby á tímabilinu.
Aron Jóhannsson í leik með Hammarby á tímabilinu. Ljósmynd/Hammarby

Aron Jóhannsson skoraði sitt tíunda mark í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar lið hans Hammarby heimsótti Östersund í dag.

Leiknum lauk með 3:1-sigri Hammarby en Aron skoraði þriðja mark Hammarby á 74. mínútu og kom liði sínu í 3:0.

Aron hefur verið afar iðinn við kolann í síðustu leikjum en þetta var hans tíunda mark í síðustu tólf leikjum.

Hammarby er með 39 stig í sjötta sæti deildarinnar, jafn mörg stig og Norrköping, Djurgården og Elfsborg, en þau eiga öll leik til góða á Hammarby.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert