Skoraði fyrsta markið á tímabilinu

Guðlaugur Victor Pálsson skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í …
Guðlaugur Victor Pálsson skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson skoraði sitt fyrsta mark í þýsku B-deildinni í fótbolta er Darmstadt gerði jafntefli á útivelli gegn Osnabrück í kvöld, 1:1. 

Guðlaugur skoraði fyrra mark leiksins á 30. mínútu er hann var fyrstur að átta sig eftir hornspyrnu. Fjórum mínútum áður fékk hann fyrsta gula spjald leiksins. 

Darmstadter í ellefta sæti deildarinnar eftir fimm leiki með einn sigur, eitt tap og þrjú jafntefli. Guðlaugur hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu í síðustu verkefnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert