Fimm sigrar í röð í Svíþjóð

Kristrún Rut Antonsdóttir í leik með Selfossi.
Kristrún Rut Antonsdóttir í leik með Selfossi. Guðmundur Karl

Kristrún Rut Antonsdóttir og stöllur hjá Mallbacken eru á skriði í sænsku B-deildinni í knattspyrnu en þær unnu sinn fimmta leik í röð í kvöld, 2:1 gegn Kvarnsvedens.

Kristrún Rut byrjaði á varamannbekknum og kom inn á 75. mínútu en Mallbacken er í 4. sæti deildarinnar með 41 stig eftir 24 leiki. Andrea Thorisson var í byrjunarliði Kalmar sem tapaði gegn Allingsås, 2:1, en hún var tekin af velli á 81. mínútu.

Kalmar er í 5. sæti með 39 stig en hvorki Kalmer né Mallbacken geta komist upp í efstu deild, enda of langt í efstu lið og aðeins tvær umferðir eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert