Neymar alvarlega meiddur?

Neymar virtist sárþjáður.
Neymar virtist sárþjáður. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar var borinn af velli í kvöld þegar París SG tapaði fyrir Lyon á heimavelli, 0:1, í toppslag frönsku 1. deildarinnar í knattspyrnu.

Neymar slasaðist á ökkla í uppbótartíma þegar hann fékk harkalega tæklingu frá Thiago Mendes, sem var rekinn af velli. Miðað við viðbrögð Brasilíumannsins sem virtist sárþjáður telja fjölmiðlar líklegt að meiðslin séu alvarleg.

Tomas Tuchel knattspyrnustjóri PSG sagði við sjónvarpsstöðina Telefoot að þetta myndi skýrast betur á morgun. Hann væri nú í umsjón sjúkraþjálfara og lækna félagsins og bíða þyrfti niðurstöðu frekari skoðunar á morgun.

Neymar liggur sárkvalinn á vellinum.
Neymar liggur sárkvalinn á vellinum. AFP
Neymar borinn sárþjáður af velli í kvöld.
Neymar borinn sárþjáður af velli í kvöld. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert