Sveindís til Svíþjóðar?

Sveindís Jane Jónsdóttir átti afar gott ár.
Sveindís Jane Jónsdóttir átti afar gott ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnukonan Sveindís Jane Jónsdóttir er á leið til Kristianstad í Svíþjóð samkvæmt Kristianstadsbladet. Verður hún líklegast lánuð til sænska liðsins en hún er á leiðinni til stórliðs Wolfsburg í Þýskalandi.

Sveindís, sem er 19 ára, átti afar gott ár og vann sér inn sæti í landsliðinu og skoraði 14 mörk í 15 deildarleikjum með Breiðabliki, en hún er uppalin hjá Keflavík.

Hjá Kristianstad myndi Sveindís leika undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur og vera liðsfélagi Sifjar Atladóttur. Liðið tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti á nýliðinni leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert