Pochettino með veiruna

Mauricio Pochettino er með kórónuveiruna.
Mauricio Pochettino er með kórónuveiruna. AFP

Mauricio Pochettino knattspyrnustjóri Paris SG í Frakklandi er með kórónuveiruna. Pochettino tók við PSG í byrjun árs.

Argentínumaðurinn verður því ekki hliðarlínunni er PSG mætir Angers og Montpellier í næstu deildarleikjum Frakklandsmeistaranna.

Í tilkynningu frá PSG kemur fram að Jesus Pérez og Miguel D‘Agostino muni stýra liðinu næstu tvo leikina hið minnsta.

Hinn 48 ára gamli Pochettino gerði góða hluti með Espanyol, Southampton og Tottenham áður en hann tók við PSG. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert