Skrifaði undir hjá Sarpsborg

Emil skrifaði undir tveggja ára samning við Sarpsborg.
Emil skrifaði undir tveggja ára samning við Sarpsborg. Ljósmynd/Sarpsborg

Emil Pálsson er genginn til liðs við norska knattspyrnufélagið Sarpsborg og skrifaði hann undir tveggja ára samning við félagið.

Þetta staðfesti Sarpsborg á samfélagsmiðlum sínum í dag en Emil kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Sandefjord rann út á dögunum.

Emil hélt út í atvinnumennsku árið 2017 eftir að hafa verið á meðal bestu leikmanna Íslandsmótsins með FH.

Hann hefur nú skrifað undir hjá Sarpsborg en liðið hafnaði í tólfta sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.

Emil, sem er 27 ára gamall, er uppalinn á Ísafirði en hann lék með BÍ/Bolungarvík, FH og Fjölni á láni áður en hann hélt út í atvinnumennsku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert