Skoraði tvö og fór áfram í átta liða

Elías Már Ómarsson í leik með U21 árs landsliði Íslands …
Elías Már Ómarsson í leik með U21 árs landsliði Íslands gegn Frakklandi. AFP

Excelsior tryggði sér í dag sæti í átta liða úrslitum hollenska bikarsins í fótbolta eftir sigur á Maastricht á útivelli. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. 

Elías Már Ómarsson kom Excelsior yfir á 16. mínútu með marki úr vítaspyrnu en staðan eftir venjulegan leiktíma var 2:2. Ekkert var skorað í framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. 

Elías tók aðra spyrnu Excelsior í vítakeppninni og skoraði en Excelsior nýtti fimm af sex vítaspyrnum sínum en Maastricht aðeins fimm og fóru Elías og félagar því áfram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert