Þriðji Blikinn á leið til Þýskalands

Alexandra Jóhannsdóttir er að ganga til liðs við Eintracht Frankfurt …
Alexandra Jóhannsdóttir er að ganga til liðs við Eintracht Frankfurt í Þýskalandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnukonan Alexandra Jóhannsdóttir er á leið til Eintracht Frankfurt í þýsku 1. deildinni en hún hefur leikið með Breiðabliki undanfarin þrjú tímabil.

Fótbolti.net greindi fyrstur miðla frá þessu en Alexandra hefur verið sterklega orðuð við félög í Þýskalandi að undanförnu.

Hún verður þriðji leikmaðurinn sem lék með Íslandsmeisturum Breiðabliks á síðustu leiktíð til þess að semja við lið í Þýskalandi en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er gengin til liðs við Bayern München og Sveindís Jane Jónsdóttir samdi við Wolfsburg milli jóla og nýárs.

Eintracht Frankfurt er í sjötta sæti þýsku 1. deildarinnar með 17 stig eftir tólf umferðir, 8 stigum frá sæti í Meistaradeildinni.

Alexandra, sem er einungis tvítug, hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki og einu sinni bikarmeistari.

Hún er uppalin hjá Haukum í Hafnarfirði en hún á að baki 67 leiki í efstu deild með Haukum og Breiðabliki þar sem hún hefur skorað 28 mörk. Þá á hún að baki 10 A-landsleiki þar sem hún hefur skorað tvö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert