Zlatan þvertekur fyrir kynþáttaníð: Sumir eru betri en aðrir

Zlatan Ibrahimovic og Romelu Lukaku rifust eins og hundur og …
Zlatan Ibrahimovic og Romelu Lukaku rifust eins og hundur og köttur í leiknum í gær. AFP

Zlatan Ibrahimovic, framherji ítalska knattspyrnufélagsins AC Milan, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atviks sem átti sér stað í leik Inter Mílanó og AC Milan í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í Mílanó gær.

Upp úr sauð undir lok fyrri hálfleiks þegar Romelu Lukaku, framherja Inter, og Zlatan lenti saman en þeir rifust eins og hundur og köttur á vellinum áður en þeir fengu báðir að líta gula spjaldið fyrir atvikið.

Zlatan fékk svo að líta sitt annað gula spjald snemma í síðari hálfleik og var rekinn af velli.

Svíinn var sakaður um kynþáttafordóma í garð Lukaku og greindu ítalskir fjölmiðlar frá því að Zlatan hefði látið niðrandi ummæli um móður Lukaku falla.

Mikið hefur verið rætt og ritað um atvikið á Ítalíu í dag en sjónarpsupptökur sína Zlatan kalla Lukaku múlasna í nokkur skipti.

Var Svíinn harðlega gagnrýndur fyrir ummælin en Lukaku svaraði honum fullum hálsi.

„Það er ekkert pláss fyrir kynþáttafordóma í heimi Zlatans,“ sagði Svíinn á Twitter.

„Við erum öll manneskjur og við erum öll jöfn. Við erum öll leikmenn, sumir betri en aðrir,“ bætti Svíinn við en leiknum lauk með 3:2-sigri Inter sem mætir annaðhvort Juventus eða SPAL í undanúrslitum.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert