Leikið á Englandi í sumar?

Úrslitaleikur EM 2021 fer fram á Wembley í London.
Úrslitaleikur EM 2021 fer fram á Wembley í London. AFP

Það bendir allt til þess að lokakeppni Evrópumótsins 2021 fari fram á Englandi næsta sumar.

Það er Tancredi Palmeri, íþróttafréttamaður hjá beIn Sports sem greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni.

Til stóð að mótið færi fram síðasta sumar en því var frestað um ár vegna kórónuveirufaraldursins.

Upphaflega átti að spila lokakeppnina í tólf borgum, víðsvegar um Evrópu, en vegna kórónuveirufaraldursins er afar ólíklegt að af því verði.

Palmeri greinir frá því að UEFA hallist að því spila allt mótið á Englandi þar sem vel gengur að bólusetja fólk fyrir veirunni.

Lokaákvörðun um mótsstað eða staði verður tekin um miðjan apríl að sögn Palmeri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert