Manchester United mætir AC Milan

Pierre-Emerick Aubameyang tryggði Arsenal dramatískan sigur á Benfica og nú …
Pierre-Emerick Aubameyang tryggði Arsenal dramatískan sigur á Benfica og nú mætir lið hans Olympiacos. AFP

Tvö af sigursælustu knattspyrnufélögum Evrópu, Manchester United og AC Milan, drógust í dag saman í sextán liða úrslitum Evrópudeildar UEFA.

Fyrri leikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester en sá síðari á San Siro í Mílanó. Zlatan Ibrahimovic fær þar tækifæri til að spila með AC Milan gegn sínum gömlu félögum í Manchester United en hann spilaði með enska liðinu á árunum 2016-2018.

Lið íslensku landsliðsmarkvarðanna Ögmundar Kristinssonar og Rúnars Alex Rúnarssonar, Olympiacos og Arsenal, drógust saman. Arsenal fer því á „heimavöll“ í útileiknum gegn Olympiacos því heimaleikur enska liðsins gegn Benfica frá Portúgal var leikinn þar í gærkvöld. Olympiacos sló Arsenal út í 32ja liða úrslitum keppninnar á síðasta tímabili.

Björn Bergmann Sigurðarson og félagar í Molde frá Noregi sem mjög óvænt slógu út Hoffenheim frá Þýskalandi í gærkvöld drógust gegn Granada frá Spáni.

Þessi lið mætast:

Ajax (Hollandi) - Young Boys (Sviss)
Dynamo Kiev (Úkraínu) - Villarreal (Spáni)
Roma (Ítalíu) - Shakhtar Donetsk (Úkraínu)
Olympiacos (Grikklandi) - Arsenal (Englandi)
Dinamo Zagreb (Króatíu) - Tottenham (Englandi)
Manchester United (Englandi) - AC Milan (Ítalíu)
Slavia Prag (Tékklandi) - Rangers (Skotlandi)
Granada (Spáni) - Molde (Noregi)

Engar takmarkanir voru í drættinum, hvorki styrkleikaflokkar né hindranir vegna landa, þannig að allir gátu dregist gegn öllum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert