Sverrir í undanúrslit eftir Íslendingaslag

Sverrir Ingi Ingason.
Sverrir Ingi Ingason. AFP

Sverrir Ingi Ingason og samherjar í PAOK frá Þessalóníku eru komnir í undanúrslit grísku bikarkeppninnar í knattspyrnu á kostnað Theódórs Elmars Bjarnasonar og félaga hans í Lamia.

Liðin skildu jöfn, 1:1, í seinni leik liðanna í Lamia í dag en PAOK hafði unnið fyrri leikinn á sínum heimavelli, 5:2.

Sverrir lék allan leikinn í vörninni hjá PAOK og Elmar spilaði fyrstu 75 mínúturnar á miðjunni hjá Lamia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert