Milan setti pressu á grannana

Diogo Dalot skoraði seinna mark AC Milan.
Diogo Dalot skoraði seinna mark AC Milan. AFP

AC Milan vann í dag 2:0-sigur á Hellas Verona á útivelli í ítölsku A-deildinni í fótbolta. 

Hvorki Zlatan Ibrahimovic né Mario Mandzukic léku með Milan en í fjarveru þeirra skoruðu Rade Krunic og Diogo Dalot mörkin, en sá síðarnefndi er lánsmaður frá Manchester United. 

Milan er í öðru sæti deildarinnar með 56 stig, þremur stigum minna en topplið Inter Mílanó sem á leik til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert