Böðvar á leið til Helsingborgar

Böðvar Böðvarsson lék í þrjú ár með Jagiellonia.
Böðvar Böðvarsson lék í þrjú ár með Jagiellonia. Ljósmynd/Kamil Swirydowicz

Knattspyrnumaðurinn Böðvar Böðvarsson sem hefur leikið með Jagiellonia í Póllandi undanfarin ár er að óbreyttu á leið til sænska félagsins Helsingborg.

Fotbollskanalen segir að samkvæmt sínum heimildum séu allar líkur á að af samningum verði og þá segir Fótbolti.net að viðræður séu langt komnar.

Böðvar er 25 ára gamall vinstri bakvörður sem lék með FH til 2017 og spilaði 73 leiki með Hafnarfjarðarliðinu í úrvalsdeildinni.

Hann gekk til liðs við Jagiellonia snemma árs 2018 og spilaði þar 43 úrvalsdeildarleiki en hann fékk samningi sínum við félagið rift á dögunum. Böðvar hefur spilað fimm A-landsleiki og lék 13 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Helsingborg hefur lengi verið eitt af stærri félögum Svíþjóðar en liðið féll úr úrvalsdeildinni á síðasta ári. Meðal leikmanna þar er færeyski landsliðsmaðurinn Brandur Olsen sem lék með FH-ingum um tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert