Chelsea tók stórt skref að undanúrslitum

Wilson Manafa og Kai Havertz eigast við í kvöld.
Wilson Manafa og Kai Havertz eigast við í kvöld. AFP

Chelsea tók stórt skref í áttina að undanúrslitum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta með 2:0-sigri á Porto í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitunum í  kvöld. Leikið var í Sevilla á Spáni vegna sóttvarnarmála, en seinni leikurinn fer fram í sömu borg.

Leikurinn í dag flokkaðist sem heimaleikur Porto og er Chelsea því í afar góðum málum með tveggja marka forskot og tvö útivallarmörk.

Mason Mount kom Chelsea yfir með marki á 32. mínútu eftir góða sendingu frá Jorginho, en markið er það fyrsta sem Mount skorar í Meistaradeildinni og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks.

Ben Chilwell tvöfaldaði forskot Chelsea með glæsilegu einstaklingsframtaki á 85. mínútu, en hann skoraði einnig sitt mark í keppninni. Það reyndist síðasta mark leiksins og er Chelsea í góðum málum fyrir seinni leikinn næstkomandi næsta þriðjudag.

Porto 0:2 Chelsea opna loka
90. mín. Það verða að minnsta kosti þrjár mínútur í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert