Sá markahæsti að glíma við meiðsli

Luis Suárez er að glíma við meiðsli.
Luis Suárez er að glíma við meiðsli. AFP

Luis Suárez, framherji spænska knattspyrnufélagsins Atlético Madrid, er að glíma við meiðsli og verður frá næstu þrjár vikurnar.

Þetta staðfesti spænska félagð á samfélagsmiðlum sínum í dag en Suárez, sem er 34 ára gamall, er meiddur á vinstri fæti. 

Úrúgvæski framherjinn er markahæsti leikmaður Atlético Madrid á tímabilinu með 19 mörk í spænsku 1. deildinni. Þá er Suárez í þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar.

Atlético Madrid er með 66 stig í efsta sæti deildarinnar og hefur eins stigs forskot á Barcelona sem er í öðru sætinu með 65 stig. Real Madrid er í þriðja sæti deildarinnar með 63 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert