Rússland á EM á kostnað Portúgals

Rússland er komið á EM eftir sigur á Portúgal.
Rússland er komið á EM eftir sigur á Portúgal. Ljósmynd/UEFA

Rússland tryggði sér í dag sæti á lokamóti Evrópumóts kvenna í fótbolta með markalausu jafntefli á heimavelli gegn Portúgal.

Rússland vann útileikinn á laugardaginn var, 1:0, með sigurmarki frá Nelli Korovkina og einvígið því samanlagt með sömu markatölu.

Evrópumótið fer fram á Englandi á næsta ári en því var frestað um eitt ár vegna kórónuveirunnar. Ísland hefur þegar tryggt sér sæti á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert