„Aðalmálið að komast áfram“

Zinedine Zidane þakkar Jürgen Klopp fyrir leikinn í kvöld.
Zinedine Zidane þakkar Jürgen Klopp fyrir leikinn í kvöld. AFP

Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madríd, segist ekki hafa búist við neinni flugeldasýningu á Anfield í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld. Aðalmálið hafi verið að komast áfram í undanúrslit. 

„Við vissum að leikurinn yrði erfiður fyrir okkur en þegar upp er staðið þá er markmiðinu náð sem var að komast áfram. Ég tel að við höfum höndlað þennan leik ágætlega. Við stóðumst álagið og getum verið stoltir af okkar frammistöðu. Leikmenn Liverpool voru virkilega góðir fyrsta kortérið en það var skiljanlegt í ljósi stöðunnar og við vorum undir það búnir. Þegar komið er í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar þá þurfa menn að hafa fyrir hlutunum. Við gerðum það og erum komnir áfram,“ sagði Zidane við fjölmiðlamenn í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert