Enn heldur Patrik markinu hreinu

Patrik Sigurður Gunnarsson.
Patrik Sigurður Gunnarsson. Eggert Jóhannesson

Patrik Sigurður Gunnarsson hélt marki sínu hreinu í enn eitt skiptið þegar Silkeborg vann HB Køge 3:0 á útivelli í dönsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 70 mínúturnar í liði Silkeborg.

Eftir að Patrik gekk til liðs við Silkeborg á láni frá enska B-deildarliðinu Brentford í byrjun árs hefur hann spilað níu leiki, haldið hreinu í sjö þeirra og aðeins fengið á sig tvö mörk.

Silkeborg hefur auk þess unnið átta af þeim níu leikjum  sem Patrik hefur tekið þátt í. Eini leikurinn sem vannst ekki var 1:1 jafntefli gegn Esbjerg. Þá tapaði Patrik ekki leik fyrir áramótin þegar hann varði mark Viborg.

Silkeborg er í 2. sætinu í dönsku B-deildinni og er nú fjórum stigum á undan Íslendingaliði Esbjerg. Efstu tvö liðin fara upp í dönsku úrvalsdeildina. Viborg  vann Esbjerg 4:0 í gærkvöld og allt bendir til þess að Viborg fari upp og Silkeborg og Esbjerg sláist um annað sætið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert