Finnland vann sinn fyrsta sigur á stórmóti karla í fótbolta er liðið vann Dani, 1:0, í fyrsta leik liðanna á lokamóti EM á Parken í Kaupmannahöfn í dag.
Sigurinn fellur í skugga atviks sem átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Christian Eriksen hneig niður og þurfti á endurlífgun að halda. Sem betur fer er líðan Eriksens stöðug, en margir óttuðust um líf danska miðjumannsins.
Leiknum var hætt eftir atvikið, en hann síðan kláraður í kvöld. Joel Pohjanpalo skoraði sigurmarkið á 59. mínútu. Pierre-Emile Højbjerg fékk gott færi til að jafna metin á 74. mínútu en Lucas Hrádecký í marki Finna varði frá honum.
Belgía og Rússland eru einnig í B-riðlinum og stendur leikur þeirra yfir, en Belgía er með 2:0-forskot.