Paragvæ upp í annað sætið

Miguel Almirón skoraði úr víti.
Miguel Almirón skoraði úr víti. AFP

Paragvæ er komið upp í annað sæti A-riðils í Suður-Ameríkukeppninni í fótbolta eftir 2:0-sigur á Síle í nótt. Mótið fer fram í Brasilíu. 

Braian Samudio kom Paragvæ yfir á 33. mínútu og Miguel Almirón, leikmaður Newcastle á Englandi, bætti við öðru markinu úr víti á 58. mínútu og þar við sat. 

Paragvæ er nú í öðru sæti A-riðils með sex stig, einu stigi minna en Argentína. Síle er í þriðja sæti með fimm stig, Úrúgvæ í fjórða með fjögur og Bólivía rekur lestina án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert