Brutu sér leið inn á leikvanginn

Aðdáendur enska liðsins á Wembley í kvöld.
Aðdáendur enska liðsins á Wembley í kvöld. AFP

Fjöldi fólks ruddist framhjá járngirðingum fyrir utan Wembley-leikvanginn í kvöld. Ítalir og Englendingar mætast í úrslitaleik Evrópumóts karla í knattspyrnu klukkan 19. 

Fram kemur á vef BBC að engir miðalausir aðdáendur enska liðsins hafi náð að brjóta sér leið á völlinn. 

Til átaka kom á milli enskra aðdáenda og öryggisvarða við leikvanginn líkt og sjá má á myndskeiði hér að neðan. Talsmaður Wembley segir að öryggisaðgerðir hafi verið virkjaðar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert