Glæsilegt mark Jóns Dags (myndskeið)

Jón Dagur fagnaði markinu vel og innilega.
Jón Dagur fagnaði markinu vel og innilega. Ljósmynd/AGF

Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðsmaður í fótbolta, skoraði fyrsta mark AGF á nýju tímabili í dönsku úrvalsdeildinni um helgina. AGF gerði þá 1:1-jafntefli við ríkjandi meistara Bröndby.

Markið var hið glæsilegasta en Jón Dagur fékk boltann á eigin vallarhelmingi, sótti að varnarmönnum Bröndby og kláraði með glæsilegu skoti í fjærhornið.

Sjón er sögu ríkari og má sjá mark Jóns Dags í spilaranum hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert