Mikael á leið í A-deildina á Ítalíu?

Mikael Egill Ellertsson leikur með SPAL.
Mikael Egill Ellertsson leikur með SPAL.

Ítalska knattspyrnufélagið Spezia sem leikur í A-deildinni vill kaupa hinn 18 ára gamla Mikael Egil Ellertsson af B-deildarfélaginu SPAL, samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.

Mikael hefur verið í röðum SPAL í þrjú ár en hann kom þangað frá Fram, og hefur leikið með unglingaliðum félagsins. Hann lék fyrsta æfingaleikinn með aðalliðinu á dögunum og skoraði þá þrennu í risasigri gegn neðrideildarliði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert