Viðar Ari skoraði í Noregi

Viðar Ari Jónsson.
Viðar Ari Jónsson.

Viðar Ari Jónsson skoraði fyrir Sandefjord í góðum útisigri á Odd í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Viðar Ari fékk hæstu einkunn fyrir frammistöðu sína hjá mörgum netmiðlum í kvöld. Sandefjord sigraði 3:2 og skoraði Viðar þriðja mark liðsins. Kom hann liðinu þá 3:1 yfir. Viðar er markahæsti leikmaður Sandefjord það sem af er tímabilinu með fimm mörk í fyrstu 13 leikjunum.

Sandefjord er í 9. sæti deildarinnar með 19 stig eftir 13 leiki en Odd er einnig með 19 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert